Af hverju eru hönnuðir um allan heim eru að snúa sér að BIM og BIM forritum til að búa til upplýsingalíkön af mannvirkjunum. Svarið er í upplýsingunum sem menn gera með BIM aðferðafræðinni, gögnin (bæði hefðbundnar grunnmyndir og snið, en einnig aðrar upplýsingar) eru réttari og skýrari en með hefðbundinni aðferð.
Eftirfarandi forrit eru BIM forrit :
ArchiCAD - fyrsta raunverulega BIM forritið sem hefur búið til upplýsingalíkön í yfir 25 ár. Rúmlega milljón mannvirki þegar byggð eftir BIM líkönum úr ArchiCAD. Stöðug þróun gerir þetta eitt besta BIM forritð á markaðnum. ArchiCAD 15 ræður við hallandi veggir og flókin form sem önnur BIM forrit eru í vandræðum að leysa.
ONUMA– er fyrsta BIM forritið til að nýta sér tölvuský, eða cloud computing. ONUMA er vefforrit sem tengir upplýsingar frá mörgum mismunandi forritum á einn stað. Ef þú þarft að samnýta margskonar gögn á einum stað þá er ONUMA forrit fyrir þig.
SOLIBRI– er elsta villuleitarforritið á markaðnum. Tekur inn upplýsingar frá mismunandi fagaðilum (arkitekta-,burðarþols– og lagnalíkön) og leitar að árekstrum og ósamræmi. Nú er komin ný útgágfa Solibri 6,2
VectorWorks- er að verða mjög öflugt BIM forrit, nú með áherslu á sterka IFC tengingu við önnur forrit. Nýja Þjóðminjasafnið í Osló er gert skv. BIM kröfum og teiknað með VectorWorks.
Prenttorg er þjónustuaðili og veitir upplýsingar um forritin, einnig Haraldur Ingvarsson hi@plusark.is